34 grunnskólanemendur fengu viðurkenningu

Skóli og frístund

""

Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs voru afhent við hátíðlega athöfn í Hlíðaskóla 26. maí. 

Nemendaverðlaunin eru veitt þeim grunnskólanemum sem skarað hafa fram úr í námi, félagsfærni, virkni í félagsstarfi eða hafa sýnt frábæra frammistöðu á tilteknu sviði skólastarfsins. Verðlaunin eru í formi viðurkenningarskjals og bókar. 34 nemendur úr 4. - 10. bekk tóku við verðlaunum að þessu sinni fyrir að vera góðar fyrirmyndir á mörgum sviðum. 

Við athöfnina í Hlíðaskóla flutti Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs ávarp, kór Hlíðaskóla söng og nemendur sungu og dönsuðu.     

Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs voru nú afhent í þrettánda skipti en síðan vorið 2003 hafa árlega verið veittar viðurkenningar og verðlaun til nemenda í grunnskólum borgarinnar sem skara fram úr í námi og starfi.  Hver grunnskóli tilnefnir nemanda til þessara verðlauna. 

Sjá yfirlit yfir handhafa nemendaverðlauna vorið 2015.