Síðastliðinn sunnudag (23. mars) boðaði huðnan Bogga komu vorsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þegar hún bar myndarlegri gráflekkóttri huðnu. Faðirinn er hafurinn Unnar sem flutti í garðinn frá Háafelli á Hvítársíðu síðastliðið haust.
Þó nokkur gestagangur var í blíðunni síðustu helgi og voru gestir viðstaddir burðinn sem gekk vel. Litla huðnan hefur fengið nafnið Sólbjört en það voru fyrrgreindir gestir sem gáfu henni þetta vorlega nafn. Hún Guðlaug Esther Hlöðversdóttir, 5 ára, kom alla leið úr Borgarfirðinum og var afskaplega ánægð með að fá að halda á Sólbjörtu.
Það má ætla að hinar huðnur garðsins beri á næstu dögum og telja dýrahirðar að huðnan Bót gæti verið næst í röðinni. Frjálsar ástir ríkja í geitastíunni ólíkt því sem gerist hjá sauðfé garðsins þar sem hrútnum var hleypt til ánna í byrjun desember og því má ætla að sauðburður hefjist í maí.