Veðurstofan vekur athygli á því að spáð er vonskuveðri á S- og V-verðu landinu í dag og fram á nótt. Búist er við stormi með yfir 20 m.sek. upp úr hádegi sem nær hámarki milli kl. 15 og 17 en gengur síðan niður.
Vert er að leggja mat á það hvort ástæða sé til að halda börnum inni í leikskólum, skólum og frístundaheimilum þar til þau verða sótt, en veðrið getur verið misjafnt á milli svæða.