Skólaslit eru í flestum grunnskólum borgarinnar í dag og í næstu viku og hverfa þá tæplega 14.000 nemendur á vit sumarævintýranna. Fjölmargt er í boði fyrir fyrir börn á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík.
Enn er hægt að skrá börn í sumarstarf en fjölmörg námskeið eru í boði. Á sumarvef ÍTR eru upplýsingar um það sumarstarf sem er í boði fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára, s.s. sumarfrístund, siglingar, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið, leikjanámskeið og margt fleira. Skráning í sumarstarfið fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.
Skráning í sumarstarf íþrótta og æskulýðsfélaga
Upplýsingar um skráningu í sumarstarf íþrótta- og æskulýðsfélaganna eru einnig á sumarvefnum og á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.
Grunnskólar Reykjavíkur verða settir föstudaginn 22. ágúst 2014.