Vinnufundur um Hofsvallagötu í dag

Skipulagsmál

""

Vinnu- og samráðsfundur með íbúum um endurhönnun Hofsvallagötu verður í dag þriðjudaginn 18. mars milli kl. 17:15 og 18:45 í salnum Kötlu á Hótel Sögu. 

Sérfræðingur hjá KPMG stýrir vinnufundinum með íbúum en áður mun fagfólk hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar kynna forsendur verkefnisins, samráðsferlið og hvernig það verður nýtt inn í hönnunina.

Hofsvallagata er skilgreind sem aðalgata í þessum hverfiskjarna í Vesturbænum en við endurhönnun slíkra gatna er horft til þarfa og öryggis hjólandi, gangandi og hreyfihamlaðra. Markmið breytinganna er að draga úr hraða bílaumferðar, hávaða, bæta öryggi og loftgæði auk þess sem lýsing og umhverfi götunnar verður bætt. Við endurgerð Hofsvallagötu verða bæði reinar fyrir bifreiðar og reiðhjól auk gangstétta. Þá verður fyrirkomulag bílastæða endurskoðað.

Starfsfólk frá Reykjavíkurborg mun sitja við öll vinnufundarborð og skrifa niður hugmyndir íbúa. Stór kort verða á borðunum þar sem íbúar geta merkt inn og skrifað hugmyndir og jafnvel teiknað. Stórar loftmyndir verða einnig á borðunum. Þemun á borðunum verða m.a. um öryggi, gróður, útilit og hönnun og aðgengi fyrir alla

Dagskrá fundarins

• Sævar Kristinsson hjá KPMG býður gesti velkomna.

• Stefán Agnar Finnsson, yfirverkfræðingur hjá umhverfis- og skipulagssviði, kynnir forsendur verkefnisins.

• Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt og umhverfisfræðingur hjá umhverfis- og skipulagssviði, kynnir samráðsferlið og hvernig það verður nýtt inn í hönnunina.

• Sævar Kristinsson stýrir vinnufundinum

Sérfræðingar frá umhverfis- og skipulagssviði sitja við öll vinnufundarborð og rita hugmyndir íbúa. Stór kort verða á borðunum þar sem íbúar geta merkt inn og skrifað hugmyndir og jafnvel teiknað. Stórar loftmyndir verða á einnig á borðunum.

Þemun á borðunum verða þessi:  

1. Öryggi – hvað má gera til þess að gera hana öruggari?

2. Gróður – hvernig gróður og hvar?

3. Útlit og hönnun – hvernig hjólastíga og lýsingu? Hvar eiga bílastæðin að vera? Torg, hellur, gönguþveranir og fleira.

4. Aðgengi fyrir alla – hvernig tryggjum við það?

5. Annað – allt annað?