Vinnu- og samráðsfundur með íbúum um endurhönnun Hofsvallagötu verður haldinn þriðjudaginn 18. mars milli kl. 17:15 og 18:45 í salnum Kötlu á Hótel Sögu.
Endurhönnun götunnar og tilheyrandi framkvæmdir eru liður í því að framfylgja nýju aðalskipulagi Reykjavíkur þar sem öllum ferðamátum er gefið rými á götum borgarinnar. Hofsvallagata er skilgreind sem aðalgata í þessum hverfiskjarna í Vesturbænum en við endurhönnun slíkra gatna er horft til þarfa og öryggis hjólandi, gangandi og hreyfihamlaðra. Markmið breytinganna er að draga úr hraða bílaumferðar, hávaða, bæta öryggi og loftgæði auk þess sem lýsing og umhverfi götunnar verður bætt.
Samráðsfundurinn verður með þjóðfundarsniði þar sem íbúar skipta sér niður á 6-8 manna borð, skrifa niður hugmyndir sínar og merkja á kort af svæðinu. Fundarstjórn verður í höndum sérfræðinga frá KPMG, sem munu einnig taka saman niðurstöður fundarins.
Unnið verður með niðurstöður úr samráðinu í endanlegri hönnun götunnar. Verkfræðistofan EFLA og landslagsarkitektar frá Landslagi veita ráðgjöf og verður endanleg hönnun kynnt þegar hún liggur fyrir á vefsvæði Reykjavíkurborgar, í þjónustumiðstöð Vesturbæjar og hjá þjónustuaðilum við götuna. Ráðgert er að hefja framkvæmdir við götuna á þessu ári og eru 150 milljónir ætlaðar til verksins.
Hofsvallagata er falleg borgargata fyrir margar sakir en frá efsta punkti hennar er bein sjónlína niður að sjó sem er einstakt fyrir breiðgötu í Reykjavík. Sérfræðingar borgarinnar hafa skoðað hvað komist fyrir í götuþversniðinu og metið þá þætti sem mikilvægast er að lagfæra og rýnt aðstæður á gatnamótum. Við endurgerð Hofsvallagötu verða bæði reinar fyrir bifreiðar og reiðhjól auk gangstétta. Þá verður fyrirkomulag bílastæða endurskoðað.