Vilt þú vera með viðburð á Menningarnótt?

Mannlíf Menning og listir

""

Umsóknarfrestur til að sækja um styrki til að halda viðburð á Menningarnótt rennur út sunnudaginn 8. júní. Hægt er að sækja um styrki á bilinu 50-200 þúsund krónur úr Menningarnæturpottinum á vefsíðu Menningarnætur www.menningarnott.is

Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Höfuðborgarstofu og Landsbankans sem verið hefur máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.  Menningarnótt verður haldin í nítjánda sinn þann 23. ágúst næstkomandi. Yfirskrift hátíðarinnar er „Gakktu í bæinn!“ sem vísar til þeirrar gömlu og góðu hefðar að bjóða fólk velkomið og gera vel við gesti.

Menningarnótt fer fram á torgum og götum, í bakgörðum og söfnum, hjá fyrirtækjum og í heimahúsum en í ár verður áhersla lögð á Hverfisgötuna. 

Nánari upplýsingar um styrki hátíðarinnar veita verkefnastjórar viðburða Höfuborgarstofu, Guðmundur Birgir Halldórsson gudmundur@visitreykjavik.is og Karen María Jónsdóttir karen@visitreykjavik.is, í síma 590-1500.