Borgarráð hefur staðfest þá skuldbindingu sína að verja hátt í 100 milljónum króna til að fullgera torg við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir. Torgið verður niðurgrafið við nýtt hús sem hýsa mun stofnuna og verður það reist á horni Brynjólfsgötu og Suðurgötu.
Gert er ráð fyrir að framlag borgarinnar til þessara framkvæmda komi til greiðslu á allt að þremur árum. Samkvæmt vinningstillögu um torgið er gert ráð fyrir skjólgóðu torgi sunnanvert við húsið og mun það í formi minna um margt á fornt grískt leikhús með góðri aðstöðu til ýmissa útiviðburða.
Áætlaður kostnaður við torgið er 92 milljónir króna. Framkvæmdir við húsið hefjast í sumar og er stefnt að því að vígja það í byrjun árs 2016 þegar þess verður minnst að íslenskar konur hafa notið kosningaréttar í eina öld. Hið nýja hús sem hýsa mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur er fjármagnað með söfnunarfé og framlagi úr ríkissjóði. Kaffistofa verður á neðstu hæð og verður hægt að sitja úti á torginu á góðviðrisdögum.