Viðurkenningar veittar úr friðarsjóðnum LennonOno Grant For Peace
Mannlíf Menning og listir
Veittar voru viðurkenningar úr friðarsjónum LennonOno Grant For Peace við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag.
Hin heimsþekkta listakona og friðarsinni Yoko Ono afhenti verðlaunin en þau eru veitt annað hvert ár til einstaklinga eða félagasamtaka sem hafa stuðlað að friði í starfi sínu.
LennonOno-friðarsjóðurinn var settur á fót árið 2002 til þess að heiðra framlag John Lennons heitins til heimsfriðar og mannréttindabaráttu. Að þessu sinni veitti Yoko Ono fimm einstaklingum viðurkenningu, en þau hafa sýnt hugrekki og helgað sig friði, sannleika og mannréttindum.
LennonOno Grant For Peace 2014:
JANN WENNER – Stofnandi tímaritsins ROLLING STONE MAGAZINE og stjórnarformaður Wenner Media.
JEREMY GILLEY – Stofnandi samtakanna Peace One Day.
DOREEN REMEN AND YVONNE FORCE VILLAREAL/ART PRODUCTION FUND – Verkefni sem miðar að því að auka listvitund almennings með því að færa nútímalist í opinber rými.
JÓN GNARR – Stjórnmálamaður og fyrrverandi borgartjóri Reykjavíkur.
Hver og einn hlaut styrk úr sjóðnum sem renna á til góðgerðarmála. Jón Gnarr ánafnaði Kvennaathvarfinu sínum styrk.
Sjá nánar fréttatilkynningu um LennonOno Grant For Peace.
Í kvöld verður Friðarsúlan í Viðey tendruð með fallegri athöfn á fæðingardegi John Lennons klukkan 20.00. Athöfnin hefst kl. 19.00 og stendur til kl. 21.00.
Yoko Ono býður öllum sem vilja taka þátt í athöfninni fría siglingu til Viðeyjar. Siglt verður frá Skarfabakka frá klukkan 18.00 til 19.30. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka og til baka. Fyrsti vagn fer klukkan 17.35 frá Hlemmi og síðan á tuttugu mínútna fresti. Að athöfn lokinni siglir fyrsta ferja frá Viðey klukkan 21.00 og munu strætisvagnarnir taka á móti fólki og flytja það að Hlemmi.