Viðrar vel til sópunar á ný

Umhverfi Framkvæmdir

""

Starfsfólk Reykjavíkurborgar vinnur um þessar mundir við að fegra borgina og er hreinsun gatna og stíga í hverfunum eitt af stóru verkefnunum. „Páskahretið seinkaði aðeins áætlunum við hreinsun, en okkar helsta vandamál er mikill sandur á stígum vegna óvenju mikillar klakamyndunar síðast liðinn vetur, sérstaklega í efri byggðum í austurhluta borgarinnar“ segir Björn Ingvarsson á skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlandsins. „Í þessari viku er ætlunin að klára hreinsun allra helstu hjólreiðastíga eða svokallaðra stofnstíga“.

Skipulega er gengið til verks við hreinsun gatna og stíga í hverfunum. Tveir hreinsunarhópar eru að störfum, annar vestan Elliðaáa og hinn austan þeirra. Fyrst er grófsópað og í seinni umferðinni eru húsagötur og ákveðnar tengibrautir smúlaðar með vatni og sópaðar aftur.  Við þessa vinnu eru notaðir 8 götusópar, 3 vatnsbílar og 8 gangstéttasópar. Farið er eftir verkáætlun sem miðar að því að ljúka hreinsun í lok maí. Unnið verður um helgina og gera starfsmenn ráð fyrir að verða komnir í takt við upphaflega áætlun í næstu viku

Skoða verkáætlun hreinsunar

Íbúar létti undir með því að færa bíla

Fyrir götuþvottinn er íbúum gert viðvart með bréfi og skiltum og þeir beðnir um að liðka til fyrir hreinsun með því að færa bíla úr götum sem verið er að hreinsa hverju sinni. „Það er töluvert seinvirkara að þrífa götur ef fólk færir ekki bíla sína, en þá þarf að hreinsa undan þeim með handdælum“ segir Björn.

Þvottur hafinn í Breiðholti

Hópurinn sem vinnur í austurhluta borgarinnar er að ljúka grófsópi í efra Breiðholti, sem er póstnúmer 111. Í síðustu viku hófst þvottur í neðra Breiðholti, sem er póstnúmer 109, og verður reynt að ljúka honum í þessari viku.  Næstu skref verða síðan að grófsópa í Grafarholti og víðar í póstnúmeri 113.  Að því loknu verður farið í Árbæinn og svo í Grafarvoginn

Grófsópað í Laugardal og Hlíðunum

Vinnuteymið í vesturhluta borgarinnar er búið að sópa og þvo Vesturbæinn og í nágrenni Kringlunnar. Í þessari viku er verið að grófsópa í Laugardal og Hlíðum, auk þess sem miðborgin verður þvegin.  Að því loknu verður síðan farið í að hreinsa í póstnúmerum 104 og 108.

Ábendingar vel þegnar

Íbúar sem vilja nánari upplýsingar eða koma ábendingum á framfæri geta haft samband við símaver Reykjavíkurborgar í síma 411 11 11.  Fyrirspurnir er einnig hægt að senda í tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is og ábendingar eiga vel heima inn á ábendingavef Reykjavíkurborgar vegna borgarlandsins