Viðey opnar á ný eftir framkvæmdir á bryggjunni

Mannlíf Menning og listir

""

Viðey opnar á ný eftir framkvæmdir á bryggjunni í janúar. Það er gaman að fara með fjölskyldu og vinum og ganga eftir skemmtilegum stígum í Viðey, virða fyrir sér náttúruna, hafið, listina, fjallasýnina og njóta kyrrðarinnar í eyjunni. Viðey er útivistasvæði í eigu Reykvíkinga og allir eru velkomnir út í eyju.

Í Viðeyjarstofu er rekið kaffihús en þangað inn er dásamlegt að setjast eftir góðan göngutúr. Vöfflur og kakó í Stofunni er tímalaus klassík. Fyrr í vetur gerði myndlistakonan Þórunn Elísabet Sveinsdóttir áhugaverða innsetningu í Viðeyjarstofu sem gefur gestum tilfinningu fyrir liðnum tíma og gaman er að rölta um húsið og virða fyrir sér munina.



Siglt er um helgar, laugardaga og sunnudaga, frá Skarfabakka klukkan 13.15, 14.15 og 15.15 og frá Viðey að Skarfabakka klukkan 13.30, 14.30, 15.30 og 16.30. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið á þessum tíma.



Fullorðnir greiða 1.100 kr. fyrir siglinguna fram og til baka, börn 7 - 15 ára greiða 550 kr. en þau yngstu sigla frítt. Eldri borgarar og öryrkjar greiða 900 krónur. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt af siglingu og veitingum.