Viðbygging við Vesturbæjarskóla

Skóli og frístund Framkvæmdir

""

Nokkrar framkvæmdir verða við Vesturbæjarskóla í sumar en verið er að hanna nýja viðbyggingu við skólann. Fyrirséð er að nemendum muni fjölga á næstu árum. 

Þar til að nýja viðbyggingin verður tekin í notkun verður húsnæðisvandi skólans leystur með því að breyta gömlu húsi sem tilheyrir Vesturbæjarskóla og stendur við Hringbraut 116-118 þannig að þar verði tvær kennslustofur, aðstaða til tónlistarkennslu og vinnurými fyrir kennara. Samhliða verða gerðar betrumbætur á húsnæði fyrir frístundastarf að Vesturvallagötu og ein færanleg kennslustofu, til viðbótar þeim þremur sem fyrir eru, verður flutt að skólanum. Sú kennslustofa verður tímabundið notuð undir tónlistarkennsluna.



Samkvæmt nemendaspá skóla- og frístundasviðs mun nemendum við Vesturbæjarskóla fjölga um 40-50 á næstu árum þegar stóru árgangarnir sem fæddust 2009 og 2010 koma inn í skólann. 



Gert er ráð fyrir að hönnun nýrrar viðbyggingar við Vesturbæjarskóla ljúki á þessu ári og að framkvæmdir við hana hefjist 2015. Áætlaður kostnaður vegna framkvæmda við skólann á þessu ári eru um 50 milljónir króna.

Sjá skýringarmyndir