Innihald náms, námsmat og uppbyggilegt félagsstarf var fulltrúum Reykjavíkurráðs ungmenna hugleikið í tillögum sem þeir fluttu í borgarstjórn í dag.
Fulltrúar ungmennaráðanna komu sér beint að þeim málefnum sem þeir töldu að borgaryfirvöld þyrftu að laga og sköpuðust líflegar umræður um tillögur þeirra.
Þorsteinn Davíð Stefánsson frá ungmennaráði Miðborgar og Hlíða lagði fram tillögu um einstaklingsmiðaðra nám þar sem nemendur fengju betra námsefni við hæfi hvers og eins. Hann taldi einsýnt að fjárskortur og skortur á starfsfólki stæði því fyrir þrifum.
Jessý Jónsdóttir frá ungmennaráði Grafarvogs óskaði eftir samræmdri einkunnargjöf í grunnskólunum, sérstaklega í eldri bekkjardeildum, þegar einkunnir skipta miklu máli fyrir val á framhaldsskóla.
Margrét Sæmundsdóttir úr ungmennaráði Árbæjar og Holta minnti borgarfulltrúa á það öfluga forvarnarstarf sem fram færi í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Hins vegar vantaði ungu fólki á aldrinum 16-25 ára ungmennahús í öllum hverfum og óskaði hún eftir föstu árlegu fjárframlagi borgarinnar til að skapa slíkan vettvang fyrir félagslíf og forvarnarstarf.
Sindri Már Fannarsson úr ungmennaráði Árbæjar og Holta lagði til að gert yrði svokallað ungmennasvæði við Úlfarsá milli Grafarholts og Úlfarsárdals. Það væri góð leið til að sporna gegn einangrun og stuðla að aukinni hreyfingu ungmenna á svæðinu. Hann taldi þetta svæði henta vel til að skapa heilbrigt umhverfi fyrir ungt fólk í daufu hverfi.
Kári Arnarsson frá ungmennaráði Laugardals og Háaleitis lagði til að allar skólalóðir í borginni yrðu upplýstar til klukkan tíu á kvöldin til að afstýra vafasamri starfsemi þar í skjóli myrkurs, s.s. dópsölu og landasölu.
Elín María Árnadóttir frá Ungmennaráði Vesturbæjar var ákveðin í máli þegar hún lagði aftur fram tillögu um aukið samráð borgarstjórnar við ungt fólk. Hún lagði til að mótað yrði skýrt verklag um það hvernig farið er með tillögur Reykjavíkurráðs frá borgarstjórnarfundi og að bæta mætti samstarf ungmenna við hverfisráðin.
Sara Þöll Finnbogadóttir úr ungmennaráði Breiðholts vildi aukna áherslu á símat í grunnskólanum, slíkt myndi stuðla að minna prófálagi og skapa betri aga til að stunda námið jafnt og þétt.
Að lokum lagði Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir úr ungmennaráði Vesturbæjar til að börn og unglingar í Vesturbæ fengju líka battavöll líkt og jafnaldrar þeirra í Breiðholtinu. Hún óskaði eftir minnst tveimur slíkum völlum, sitt hvorum megin við Hringbrautina.
Kjörnir fulltrúar fögnuðu öllum fram komnum tillögum og fóru yfir þær og aðrar frá Reykjavíkurráðinu sem fengið hafa afgreiðslu í borgarkerfinu. Fram kom vilji borgarfulltrúa til að skýra verklag í öllu samstarfi við ungmenni í borginni og að komið yrði til móts við tillögur þeirra um aukið og markvisst samráð. Einnig kom fram að fulltrúar Reykjavíkurráðsins hefðu nú fengið áheyrnarfulltrúa í skóla- og frístundaráði og væru miklar væntingar um að það skapaði frjóan vettvang til umræðna við ungt fólk. Þá var upplýst að áform væru uppi um að setja upp battavöll við Melaskóla í Vesturbæ og væru framkvæmdir fyrirhugaðar í sumar, svo og að verið væri að yfirfara lýsingar á skólalóðum þannig að vænta mætti skjótra úrbóta í samræmi við tillögu Reykjavíkurráðsins.