Starfsfólk í skóla- og frístundastarfi í Vesturbæ fjölmennti í Hagaskóla í dag á sameiginlegan starfsdag undir yfirskriftinni Vesturbæjarfléttan, en þetta er þriðja árið í röð sem hún er haldin.
Dagur B. Eggertsson setti Vesturbæjarfléttuna þar sem lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf starfsfólks í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi og flæði milli fagstétta og skólastiga. Hann sagði m.a. í ávarpi sínu að þekkingarmiðlun eins og sú sem fram færi á Vesturbæjarfléttu miðaði að því að bæta þjónustu við börn og barnafjölskyldur í Vesturbæ, efla fagstarfið, stuðla að nýbreytni og styrkja liðsheildina - og allt myndi það skila það sér til komandi kynslóða því það sem vel er gert finni sér alltaf farveg. Þá sagði borgarstjóri að persónuleg tengsl væru grunnur að öllu samstarfi og forsenda þess að góðar hugmyndir yrðu að veruleika. Hann óskaði starfsfólki góðs starfsdags og sagðist vona að margar góðar hugmyndir að metnaðarfullum þróunar- og nýbreytniverkefnum myndu kvikna á Vesturbæjarfléttunni.
Vel á sjötta hundrað starfsmenn tóku þátt í þessum sameiginlega starfsdegi í Vesturbæ en boðið var upp á margs konar fagsmiðjur og fyrirlestra. Meðal þess sem starfsfólk tók sér fyrir hendur í vinnusmiðjum og málstofum var að fræðast um læsi og teiknimyndasögur, vellíðan í vinnunni, leiðir til að vinna gegn fordómum og staðalmyndum, umhverfisvitund og skapandi starf. Líflegar umræður sköpuðust í vinnusmiðjunum milli fólks frá hinum ýmsu starfsstöðvum skóla- og frístundasviðs í Vesturbæ og er óhætt að fullyrða að þar hafi farið fram skemmtileg þekkingarmiðlun og þverfaglegt samstarf.
Vesturbæjarfléttu lýkur í kvöld með sameiginlegri skemmtun starfsfólks skóla- og frístundasviðs og dansleik.