Vertu með á Barnamenningarhátíð 2014!

Skóli og frístund Mannlíf

""

Barnamenningarhátíð verður haldin í fjórða sinn dagana 29. apríl til 4. maí 2014. Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf barna og ungmenna í borginni. Opnað hefur verið fyrir skráningu á viðburðum. Skráningin fer fram á vefsíðu hátíðarinnar: www.barnamenningarhatid.is. 

Viðburðirnir hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af börnum og öðru hugmyndaríku fólki og er hátíðin því kærkominn vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. 
 
Umsóknarfrestur 

Opnað hefur verið fyrir skráningu á viðburðum, skráningin fer fram á vefsíðu hátíðarinnar: www.barnamenningarhatid.is en með því að smella á „Taktu þátt“ í vefborða má bæði skrá viðburð og sækja um þátttökukostnað.  
Frestur til að sækja um þátttökukostnað vegna viðburða er t/m 21. febrúar.
Frestur til að skrá viðburð til þátttöku er t/m 1. apríl.
 
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 590 1500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: barnamenningarhatid@reykjavik.is.
 
Barnamenningarhátíð er skipulögð af Höfuðborgarstofu sem heldur utan um almenna skipulagningu og samhæfingu viðburða, stendur að útgáfu dagskrár og kynningu á hátíðinni.