Velferðarráð veitir minningarsjóði Lofts Gunnarssonar viðurkenningu

Velferð

""
Gestir á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar 13. febrúar voru þær Hrafnhildur Jóhannesdóttir, Þórunn Brandsdóttir og Ellen Ágústa Björnsdóttir,  fulltrúar frá minningarsjóði Lofts Gunnarsson. Velferðarráð vildi sýna þakklætisvott  vegna veglegra gjafa úr sjóðnum. 

Sjóðurinn hefur af miklum dugnaði safnað fyrir utangarðsfólk í borginni og hefur m.a. gefið Gistiskýlinu  tuttugu rúm og Konukoti  níu rúm en með þeim hafa fylgt rúmföt, sængur og koddar auk þess að færa Gistiskýlinu flatskjá að gjöf.

Á fundinum færði velferðarráð fulltrúum sjóðsins viðurkenningarskjal um leið og það þakkaði eftirtektarvert framtak, gjafir og alúð í garð heimilislausra í Reykjavík. Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar stefnir að því að vinna að málefnum heimilislausra a.m.k. til ársins 2018.