Vel sóttur vinnufundur um Hofsvallagötu

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Um 60 manns sóttu samráðs- og vinnufund sem umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hélt um endurgerð Hofsvallagötu í gær. Fundurinn var með eins konar þjóðfundarfyrirkomulagi og gátu íbúar tjáð sig um mismunandi þætti varðandi endurgerð götunnar.



Samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 – 2030 er Hofsvallagata skilgreind sem aðalgata í Vesturbænum. Við endurhönnun slíkra gatna er horft til þarfa og öryggis hjólandi, gangandi og hreyfihamlaðra. Markmið breytinganna er að draga úr hraða bílaumferðar, hávaða, bæta öryggi og loftgæði auk þess sem lýsing og allt umhverfi götunnar verður endurnýjað og bætt. Við endurgerð Hofsvallagötu verða bæði reinar fyrir bifreiðar og reiðhjól auk gangstétta. Þá verður fyrirkomulag bílastæða endurskoðað. Allt þetta var rætt í þaula á fundinum af íbúum.

Fundarstjórn var í höndum Sævars Kristinssonar frá KPMG en Stefán Agnar Finnsson yfirverkfræðingur hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar kynnti forsendur verkefnisins og Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt og umhverfisfræðingur, kynnti samráðsferlið og hvernig það yrði nýtt við endurhönnun götunnar.

Að loknum kynningum settust fundargestir niður við borð og tjáðu hugmyndir sínar varðandi mismunandi þætti endurgerðarinnar. Stór kort og loftmyndir af götunni og nánasta umhverfi voru á borðunum en hvert borð hafði þema, t.a.m. öryggi, gróður, útlit, hönnun og aðgengi. Starfsmenn Reykjavíkurborgar skrifuðu niður hugmyndir íbúa. Góður vinnuandi var á fundinum og umræður líflegar. Unnin verður fundargerð upp úr vinnu fundargesta sem send verður á netfangalista þeirra sem mættu á fundinn og á vef Reykjavíkurborgar.