Yfir hundrað manns komu og fylgdust með þegar skæruliðarnir í Guerrilla Lighting lýstu upp skammdegið með „ljósaárásum“ í Breiðholti í gærkvöldi. Hópurinn leiddi áhorfendur á milli staða þar sem fagurlit lýsingin lýsti upp byggingar, leiktæki og fleiri illa upplýsta staði.
Árásirnar hófust í Fellaskóla og var farið þaðan í Hólabrekkuskóla og á gervigrasið hjá Leikni. Stöðunum var umbreytt með ljósum og stóð hver ljósaárás aðeins yfir í nokkrar mínútur. Því var mikilvægt að vera vel vakandi til að missa ekki af sjónarspilinu. 40 manns á öllum aldri tóku þátt í ljósaárásinni og aðstoðuðu skæruliðana við viðburðinn.
Samkvæmt Rósu Dögg Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra viðburðarins, tókust ljósaárásirnar mjög vel og eru skæruliðarnir ánægðir með hversu margir tóku þátt. Rósa Dögg þakkar öllum fyrir þátttöku og aðstoð við viðburðinn.
Skæruliðarnir hafa nú þegar hafist handa við að skipuleggja næstu ljósaárás en hópurinn samanstendur af útskrifuðum nemendum í lýsingarhönnun í Tækniskólanum og fyrsta árs nemendum auk sjálfboðaliða frá félagsmiðstöðvum í Breiðholti.