Vel lukkaður námskeiðsdagur dagforeldra

Skóli og frístund

""

Árlegur námskeiðsdagur reykvískra dagforeldra var haldinn 14. mars og sóttu hann 130 manns. 

Hinn árlegi námskeiðsdagur var að þessu sinni haldinn í Valsheimilinu við Hlíðarenda. Fyrir hádegi var fræðsla um eldavarnir undir stjórn Alfons Sigurðar Kristinssonar frá Eldvarnareftirlitinu, en einnig fjallaði Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir um tengslamyndun ungra barna og Magnea Karlsdóttir frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um öruggt umhverfi barna.  

Eftir hádegið hélt Guðrún Margrét Snorradóttir mannauðsráðgjafi erindi um hvernig blómstra má í starfi með jákvæða sálfræði að leiðarljósi og námskeiðinu lauk svo með tónrænum hugleiðingum undir stjórn Hjörleifs Hjartarsonar uppgjafa barnakennara.