Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Þetta er í þriðja sinn sem þingið er haldið og voru 200 manns skráðir sem er metþátttaka.
Þingið hófst klukkan 10.00 með ávarpi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Að því loknu hófst hópastarf sem fram fór í fundarsölum Ráðhúss Reykjavíkur, m.a. borgarstjórnarsalnum.
Alls búa um 14.000 innflytjendur í Reykjavík. Markmiðið með þinginu er að skapa umræður um málefni innflytjenda og eru umræðuefni m.a. menntamál, gagnkvæm aðlögun, réttindabarátta innflytjenda, fræðslumál, móttaka nýrra íbúa í Reykjavík og fleira.
Unnið var í hópum á 11 tungumálum; íslensku, ensku, pólsku, litháísku, rússnesku, tælensku, víetnamísku, kínversku, lettnesku, spænsku og arabísku.
Niðurstöður þingsins verða nýttar í aðgerðaráætlun í verkefninu Fjölmenningarborgir (e. Intercultural Cities) sem er á vegum Evrópuráðsins.
Á þinginu var einnig kosið í fjölmenningarráð Reykjavíkur og höfðu allir skráðir þingfulltrúar kosningarétt. Í ráðinu verða 5 fulltrúar, 3 verða kosnir og 2 tilnefndir af borgarstjórn. Úrslit kosninganna verða tilkynnt mánudaginn 17. nóvember nk.