Vel gengur að manna skóla og frístundaheimili

Skóli og frístund

""

Samkvæmt stöðuyfirliti sem kynnt var í skóla- og frístundaráði í dag á eftir að ráða í 87 stöðugildi í leikskólum, 46 í grunnskólum og um 63 í frístundastarfinu. 

Í leikskólum vantar 10 stöðugildi deildarstjóra, um 47 stöðugildi leikskólakennara á deild og um 20 stöðugildi í stuðning.  Þá vantar um 9 stöðugildi í skilastöður/afleysingar. 

Í grunnskólum vantar um 11 stöðugildi kennara, þar af tvö stöðugildi umsjónarkennara, um 19 stöðugildi skólaliða og 10 stöðugildi stuðningsfulltrúa. 

Af 63 stöðugildum sem þarf að ráða í í frístundaheimilum vantar um 18 í starf með fötluðum börnum og ungmennum. Yfirleitt er um 50% störf að ræða.

Á sama tíma í fyrra, eða 21. ágúst átti eftir að ráða í 75 stöðugildi í leikskólum borgarinnar, 23 í grunnskólum og 120 starfsmenn í 60 stöðugildi í frístundaheimilum. Þann 28. ágúst 2013 var aftur spurt um stöðu í frístundaheimilum og þá vantaði um 85 starfsmenn.

Börn í leikskólum Reykjavíkurborgar

Þann 15. ágúst 2014 voru 6.035 börn með vistun í leikskólum Reykjavíkurborgar en heildarfjöldi plássa er 6.049.  Þessa dagana er aðlögun nýrra leikskólabarna í fullum gangi. 15. ágúst voru 55 börn fædd á árunum 2009 - 2012 á biðlista eftir leikskólaplássi, þar af 13 með lögheimili utan Reykjavíkur.  Af 55 börnum á biðlista voru 37 börn fædd 2012, þar af hafa foreldrar 27 þeirra afþakkað boð um aðra leikskóla en þeir sóttu um í upphafi. Flest börn á biðlista eru að bíða eftir plássi í leikskólum í hverfi Laugardals og Háaleitis. Öll börn fædd 2012 eða fyrr sem höfðu sótt um leikskólapláss hjá Reykjavíkurborg í vor hafa fengið boð um vistun í leikskóla. 

Nemendur í grunnskólum Reykjavíkurborgar

Nemendafjöldi í almennum grunnskólum í Reykjavík stendur í 13.716 nemendum þann 20.ágúst.  Haustið 2013 voru nemendur í almennum grunnskólum 13.497 svo fjölgað hefur um 219.  Spár gerðu ráð fyrir að nemendafjöldi yrði 13.739 svo lítil frávik eru frá spá eins og staðan er nú.  Búist er við töluverðum breytingum á nemendafjölda næstu daga í kringum skólabyrjun. 

Í einstökum hverfum má nefna að í Miðborg/Hlíðum hefur nemendum fjölgað um 14 sem er heldur minni fjölgun en búist var við.  Í Vesturbæ hefur nemendum fjölgað um 50 en búist var við fjölgun um 70; helst munar um að nemendum fjölgar minna í Vesturbæjarskóla og Melaskóla en gert var ráð fyrir.  Nemendum fjölgar mest í grunnskólum í Árbæ/Grafarholti þar sem þeim fjölgar samtals um 136 en spár gerðu ráð fyrir nokkuð minni fjölgun.  Í Laugardal/Háaleiti fjölgar nemendum um 20 og Breiðholti um 40 sem er í samræmi við spá.  Eina hverfi borgarinnar þar sem nemendum fækkar milli ára er Grafarvogur/Kjalarnes en þar fækkar nemendum um rúmlega 40 sem er framhald af þróun sem verið hefur í því hverfi undanfarin ár og spár gerðu ráð fyrir.

Börn í frístundaheimilum Reykjavíkurborgar

Alls hafa 3.589 umsóknir borist um frístundaheimili auk 108 umsókna í frístundaklúbba fyrir fötluð börn og ungmenni. Spá gerði ráð fyrir að fjöldi í frístundaheimilum yrði um 3.700 þetta haust.  Þann 20. ágúst höfðu 1.846 börn verið tekin inn í frístundaheimili og 21 í frístundaklúbba. 

Í Grafarvogi/Kjalarnesi, Miðborg/Hlíðum og Laugardal/Háaleiti verða öll börn sem bíða eftir frístundaheimili tekin inn fyrir helgi og þá munu um 900 börn vera á biðlista eftir frístundaheimili.

Í Vesturbæ og Breiðholti eru um 40% umsækjenda á bið en um 60% umsækjenda í Árbæ/Grafarholti enda er nemendafjölgun í grunnskólum þar langmest.  Á sama tíma í fyrra voru 981 á biðlista en þá voru umsóknir færri en nú. 

Grunnskólarnir í Reykjavík verða settir föstudaginn 22. ágúst.