Veitingaaðstaða til leigu í Gerðubergi

Framkvæmdir Menning og listir

""

Borgarbókasafn Reykjavíkur og Menningarmiðstöðin Gerðuberg óska eftir áhugasömum rekstraraðilum til að taka að sér veitingarekstur í Gerðubergi frá 1. febrúar 2015. Í Gerðubergi er umfangsmikil starfsemi; bókasafn, fjölbreytt menningardagskrá, félagsstarf auk verkefnisins Menntunar núna. Salir og fundarherbergi hússins eru leigð út fyrir fundi, námskeið, veislur og ráðstefnur af ýmsu tagi auk þess sem ýmis félagasamtök hafa aðstöðu í húsinu til lengri eða skemmri tíma. 

Áætlaður gestafjöldi Gerðubergs á ársgrundvelli er 160 - 170 þúsund manns. Kaffihúsið sinnir því fjölbreyttum hópi almennra gesta og viðskiptavina hússins. Nýjum rekstraraðila er því ætlað að byggja upp nútímalegt kaffihús með metnaðarfulla veitingastefnu sem höfðar til breiðs hóps gesta, viðskiptavina og íbúa hverfsins. Rekstraraðili á jafnframt kost á að semja við velferðarsvið um þjónustu við eldri borgara og aðra sem njóta niðurgreiðslu á hádegisverði á virkum dögum.

Um er að ræða leigurými á efri hæð Gerðubergs. Á þessu ári hefur verið unnið að umfangsmiklum breytingum á hæðinni, þ.á.m. veitingaaðstöðunni. Eldhúsi og afgreiðslu hefur verið komið fyrir á nýjum stað og er útbúið nýjum búnaði og fallegum innréttingum. Eldhús er 31,9 m2, anddyri/kaffihús er 198,7 m2 og fundarrými inn af kaffihúsi er 21,6 m2. Samtals: 252,2 m2.

Hér er því um að ræða einstakt tækifæri fyrir hæfan rekstraraðila að byggja upp rekstur á nýjum grunni. Í Gerðubergi er lögð áhersla á að skapa notalega stemningu yfir daginn auk þess sem kaffihúsið er jafnan opið þegar boðið er upp á viðburði og uppákomur í húsinu á öðrum tímum. Lögð er áhersla á hollar, léttar og huggulega framsettar veitingar fyrir stærri og minni hópa, gesti og gangandi, þ.m.t. heita rétti í hádeginu og gott kaffi og með því á öðrum tímum dagsins.

Fastur afgreiðslutími kaffihússins er frá kl. 8 - 18 á virkum dögum og frá kl. 13-16 um helgar auk þess sem gera þarf ráð fyrir þjónustu við salaleigugesti og gesti á viðburðum í samræmi við útleigu sala og tímasetningu viðburða. Gert er ráð fyrir að rekstraraðili starfi með safnstjóra og upplýsinga- og þjónustustjóra að því að setja nýjan brag á veitingaþjónustu og ná til nýrra markhópa auk þeirra sem fyrir eru. Rekstraraðili þarf að búa yfir mjög góðri samskiptafærni og vera tilbúinn að aðlaga reksturinn að þörfum hússins hverju sinni.

Allar upplýsingar um útboðið er að finna hér.