Vegglist í Breiðholti

""

Listasafn Reykjavíkur og frístundamiðstöðin Miðberg standa í sumar fyrir listsmiðjum um vegglist fyrir ungmenni í Breiðholti. Átta ungmenni á aldrinum 17-20 ára hafa verið ráðin til læra veggmyndagerð undir handleiðslu reyndra listamanna. Þau fá jafnframt tækifæri til að mála myndir á veggi í hverfinu í samráði við íbúa og Reykjavíkurborg. 

Verkefnið hefst 4. júní og stendur til 25. júlí. Þá verða listsmiðjur um vegglist haldnar fyrir yngri aldurshópa í Breiðholti síðar í sumar. Þetta er hluti af stærra verkefni um vegglist í Breiðholti sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir frá því í fyrra. Fyrir rúmu ári fékk listasafnið listakonurnar Söru Riel og Theresu Himmer til að gera veggmyndir á gafla tveggja hárra fjölbýlishúsa í efra Breiðholti. Veggmynd Theresu Himmer var afhjúpuð í haust en til stendur að afhjúpa verk Söru Riel í sumar. Loks hefur borgarráð samþykkt að bæta við tveimur veggmyndum eftir Erró í efra Breiðholt. Verkefninu er ætlað að breiða út list í opinberu rými utan miðborgarinnar, fegra efra Breiðholt og auka stolt íbúanna af nærumhverfi sínu.