Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals verður haldinn laugardaginn 16. ágúst frá kl. 13 - 17 við smábátahöfnina í Elliðavogi. Að honum loknum verður slegið upp grillveislu og kvöldvöku með varðeldi.
Á markaðnum geta íbúar í Laugardal selt og keypt allt milli himins og jarðar; föt, fínerí, geisladiska, grænmeti, leikföng, listmuni, húsgögn, handverk, heimagerðar sultur, bækur og ber.
Jafnan er mikið fjör á markaðnum enda draga skemmtilegar uppákomur margan að. Að vanda verður boðið upp á fjölbreytta tónlistardagskrá á sviðinu!
Skráning fyrir þá sem vilja selja er á utimarkadur@gmail.com og það eina sem þarf að gera er að skrá sig og mæta með borð, stóla og annað sem þarf við söluna.
Þátttaka á markaðnum kostar ekki neitt en þar sem kostar töluvert að koma upp salerni, hljóðkerfi, sviði og margt, margt fleira væri afar vel þegið að þátttakendur og aðrir velunnarar leggi markaðinum lið með því að taka þátt í söfnun á: www.karolinafund.com/project/view/464
Reynslan hefur sýnt að íbúar í Laugardal og víðar vilja helst ekki fara heim að loknum þessum líflega markaði. Þess vegna verður grillveislan strax að honum loknum og síðan verður kveiktur varðeldur og sungið. Þeir sem vilja vera með í veislunni taki með sér mat á grillið, disk, hníf og gaffal og ekki síst góða skapið.
Í anda vistvænni byggðar hvetja Íbúasamtök Laugardals alla markaðs- og kvöldvökugesti til að koma gangandi, hjólandi eða í strætó. Þeir sem endilega verða að koma á bíl finna hins vegar nóg af bílastæðum beggja vegna Elliðavogsins.