Síðasta föstudag voru afhentir styrkir úr Heita potti Hins Hússins. Fjármagn úr Heita pottinum er ætlað til þess að styðja við frumkvæði og kraft ungs fólks í Breiðholti. Athöfnin fór fram á viðeigandi stað í Breiðholtslaug. Eva Einarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs afhenti styrkina.
Eftirfarandi aðilar og verkefni fengu styrki:
Hrefna Björg Gylfadóttir - Ljósmyndir af viðburðum, stöðum og fólki sem setur jákvæðan svip á Breiðholtið og ljósmyndasýning á netinu eða í húsnæði í Breiðholti.
Anna Sigrún Guðmundsdóttir - Skrásetning Breiðholtsins með ljósmyndum sem sýnir hversu huggulegt og barnvænt Breiðholtið er. Í lokin verður svo ljósmyndasýning.
Anna Sigrún Guðmundsdóttir - Instagram leikur Breiðholtsins. Fólk tekur myndir og merkir þær leiknum (#hashtag)og bestu eru valdar á sýningu. Verðlaun fyrir efstu sætin.
Halla Birgisdóttir - Myndlistasýning í Breiðholtsskóla: Vor í Breiðholti. Til að stuðla að jákvæðri ímynd hverfisins.
Selma Reynisdóttir - Sprettur: Neðanvatnshljóðmynd í Breiðholtslaug og örsagnaseríur settar upp í sem myndir og texti í Mjódd. Verður í þrjá mánuði og ný saga í hverjum mánuði.
Guðbjörg Fjóla Hannesdóttir - Upplífgandi og skemmtilegar setningar á gangstéttir í Breiðholti.
Sölvi Steinn Jónsson - Áframhaldandi vinna við hjólabraut v. Breiðholt & Vatnsenda, vilja efla hjólreiðasamfélagið í Reykjavík.