Út fyrir endimörk alheimsins í Breiðholtslaug

Íþróttir og útivist

""

Fljótandi slökun í Breiðholtslaug á Sundlauganótt - viðburðurinn hefst kl. 22.45 laugardaginn 15. febrúar og stendur yfir í klukkutíma.

Komdu með í ferðalag sem fleytir þér út fyrir endimörk alheimsins. Saman munum við svífa um í leikandi léttu þyngdarleysi gegnum stjörnur og skýjahnoðra og kanna nýjar víddir umvafin töframætti vatnsins.

Flæðandi fagrir og seiðandi tónar munu óma í sundlauginni meðan flotið er. Við notumst við Flothettur og flotbúnað frá Float sem er ný íslensk hönnun, innblásin af vatnsauðlegð og baðmenningu Íslands. Þessi einfaldi búnaður hjálpar fólki að njóta fljótandi slökunar, losa um streitu og upplifa endurnærandi stund í kyrrð vatnsins.

Sundlauganótt er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík