Málþing um valdeflandi starf með börnum og unglingum verður haldið 4. júní í Laugalækjarskóla frá kl. 14.00- 16.15. Málþingið er samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Jafnréttisstofu og Embættis landlæknis.
Aðalfyrirlesari er Dr. Dana Edell, aktívisti, fræði- og listakona og mun hún í erindi sínu fjalla um birtingamyndir klámvæðingar og áhrif hennar á ungt fólk. Þá fjallar hún um hvernig megi vinna á móti skaðlegum áhrifum klámvæðingar og stuðla að heilbrigðri kynímynd unglinga. Erindi sitt kallar hún: SPARKing Changing to End the Sexualization of Girls.
Dana er framkvæmdastjóri SPARK-hreyfingarinnar (SPARKmovement.org) og er með doktorsgráðu í menntunarfræði leiklistar. Hún hefur mikla reynslu af valdeflandi starfi með ungu fólki á alþjóðavísu þar sem unnið er gegn staðalmyndum og klámvæðingu í fjölmiðlum.
Naglalakkaðir unglingsdrengir
Þorsteinn V. Einarsson, verkefnisstjóri félagsmiðstöðvarinnar Dregyn mun í sínu erindi fjalla um hvað gerðist þegar tugir unglingsdrengja í Grafarvogi brutust út úr norminu og naglalökkuðu sig. Geta staðalmyndir líka verið heftandi fyrir stráka?
Líkamsvirðing: Mikilvægur áhersluþáttur í starfi með ungmennum
Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis mun í sínu erindi fjalla um líkamsvirðingu. Hún hefur um árabil staðið fyrir samfélagsbaráttu fyrir líkamsvirðingu hér á landi og gaf nýverið út bókina Kroppurinn er kraftaverk-líkamsvirðing fyrir börn sem miðar að því að efla líkamsmynd og virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsvaxtar meðal yngstu kynslóðarinnar. Sigrún fjallar um áhrif staðalmynda um holdafar og útlit í lífi ungs fólks og hvernig vinna má gegn þeim í skóla- og frístundastarfi.
Málþingið er öllum opið. Gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða.