Úrslit kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar 2014 - 2016

Kosningar Mannréttindi

""

Úrslit kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkur voru tilkynnt í dag.

 
Kosið var í fjölmenningarráð Reykjavíkur á fjölmenningarþingi sem fram fór þann 15. nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur.  Alls buðu sig fram 11 aðilar til setu í ráðinu.
 
Fjölmenningarráð verður skipað 5 einstaklingum, þrem fulltrúum kjörnum á fjölmenningarþingi og tveim skipuðum af borgarstjórn. Fjölmenningarráð skal vera borgarstjórn, nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni og hagsmuni borgarbúa sem snúa að innflytjendum. 
 
Á kjörskrá voru allir þeir sem voru skráðir til þátttöku á fjölmenningarþingi eða 264 einstaklingar.
Alls kusu 148 einstaklingar í kjörinu eða 56% af þeim sem voru á kjörskrá. 
Eftirtaldir hlutu kosningu sem aðalmenn í fjölmenningarráði:
 
Marina de Quintanilha e Mendonça,
Matthew Naiman,
Zoë Robert.
 
Varmenn eru:
 
Paul Fontaine,
Dominika Sigmundsson,
Elena Martínez Pérez.