Ellefu ung tónskáld sem fengu tónsköpunarverðlaun barna og unglinga fengu að heyra verk sín flutt af færustu listamönnum í Kaldalóni í Hörpu í gær.
Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og tónlistarmennirnir Unnsteinn Stefánsson, Ragnheiður Gröndal og fleiri fluttu verk ellefu ungra tónskálda sem sendu inn tónsmíð eða drög að tónverki í Upptaktinn. Verkin voru svo fullunnin með aðstoð tónskálda og fagfólks í tónlist og urðu í því ferli til alveg ný tónverk; klassísk verk, popplög og raftónlist.
Öll verkin voru flutt á glæsilegum tónleikum á upphafsdegi Barnamenningarhátíðar og fengu allir þátttakendur tónsköpunarverðlaunin Upptaktinn 2014.
Upptakturinn er samstarfsverkefni Barnamenningarhátíðar og Hörpu og er óhætt að segja að það hafi tekist vel og verið ungum tónlistarmönnum og tónskáldum mikil hvatning.
Verkefnastjórn er í höndum Elfu Lilju Gísladóttur.