Skóla og frístundaráð hefur samþykkt að Reykjavíkurráð ungmenna fái áheyrnarfulltrúa í ráðinu.
Í greinargerð með tillögu um málið segir m.a. að hún sé liður í því að gefa Reykjavíkurráði ungmenna tímabundna innsýn í vinnu skóla- og frístundaráðs.
Ráðið hafði áður samþykkt tvær tillögur er varða skipan áheyrnarfulltrúa Reykjavíkurráðsins, m.a. að þeim yrði gert kleift að mæta á þá fundi skóla- og frístundaráðs þar sem eru mál er varða þeirra hagsmuni eru til umfjöllunar.