Ungmennahúsið Jökla opnað í Frostaskjóli

Skóli og frístund Mannlíf

""

Jökla er ungmennahús fyrir unglinga í Vesturbæ og var haldin vegleg opnunarhátíð í gær. 

Ungmenni á aldrinum sextán til átján ára komu saman og fögnuðu því að eiga sér samastað þar sem þau geta hent í köku, lært á lífið og lengt líftíma með gleði.

Frostaskjólið hefur lengi verið samkomustaður unglinga og ungmenna í Vesturbænum og nú ehfur verið opnaður nýr vettvangur sem vonandi vex, dafnar og þroskast á næstu árum.

Aðdraganda þessa má rekja til upphafs vorannar, en síðan þá hefur farið fram endurskipulagning á ungmennahúsinu, sem hefur verið starfrækt undanfarin ár í húsakynnum Frostaskjóls. Eftir hugmyndavinnu og heimsóknir í önnur ungmennahús á höfuðborgarsvæðinu tóku starfsmenn og fulltrúar úr Ungmennaráði Vesturbæjar þá ákvörðun að umbreyta starfinu algjörlega og skipta um gír. Í samstarfi við Ungmennaráðið hefur á undanförnum vikum verið unnið markvisst  að því að leggja grunn að því sem koma skal og eru allar breytingar og nýja nafnið á ungmennahúsið frá því komið.



Starfið í Jöklu verður frábrugðið því  sem unnið er á grunnskólastigi en þar munu ungmennin koma að allri skipulagningu, vinna að kostnaðaráætlun og setja sér sjálf markmið og viðmið í starfinu.



Í Jöklu er frábær aðstaða sem ungt fólk í Vesturbænum getur nýtt til sköpunar, afslöppunar, lærdóms, eldamennsku og ræktað allt sem hugurinn girnist. Ungmennahúsið er 

viðbót við félagslíf framhaldsskólanna og vettvangur þar sem einstaklingar á aldrinum 16 til 18 ára geta skapað og notið samveru í vímuefnalausu umhverfi, staður þar sem hægt er að funda, vinna hljóð, myndbönd, skólablöð eða bara næra sálartetrið í góðum félagsskap.