Fimmtudaginn 3. apríl sl. fór fram vel heppnuð opnunarhátíð ungmennahússins Jöklu. Ungmenni á aldrinum sextán til átján ára komu saman og fögnuðu því að eiga samastað þar sem þau geta hent í köku, lært á lífið og lengt líftíma með gleði.
Fimmtudaginn 3. apríl sl. fór fram vel heppnuð opnunarhátíð ungmennahússins Jöklu. Ungmenni á aldrinum sextán til átján ára komu saman og fögnuðu því að eiga samastað þar sem þau geta hent í köku, lært á lífið og lengt líftíma með gleði. Frostaskjólið hefur lengi verið samkomustaður unglinga og ungmenna í vesturbænum og nú opnuðum við með glæsibrag nýjan arm sem vonandi vex, dafnar og þroskast á næstu árum.
Aðdraganda opnunarinnar má rekja til upphafs vorannar, en síðan þá hefur farið fram heildar endurskipulagning á ungmennahúsinu, sem hefur verið starfrækt undanfarin ár í húsakynnum Frostaskjóls. Eftir hugmyndavinnu og heimsóknir í önnur ungmennahús á höfuðborgarsvæðinu tóku starfsmenn og einstaklingar úr Ungmennaráði Vesturbæjar þá ákvörðun að umbreyta starfinu algjörlega og skipta um gír. Í samstarfi við Ungmennaráð Vesturbæjar hefur á undanförnum vikum verið unnið markvisst að því að smíða grunn að því sem koma skal og er umbreytingin algjörlega frá þeim komin. Ungmennin hafa skipt um nafn og eru afar stolt af því að framvegis mun ungmennahúsið í Frostaskjóli bera nafnið Jökla.
Jökla er frábrugðið því starfi sem unnið er á grunnskólastigi en hjá okkur koma ungmennin að allri skipulagningu, vinna að kostnaðaráætlun og setja sér sjálf markmið og viðmið í starfinu.
Í Jöklu er frábær aðstaða sem ungt fólk í vesturbænum getur nýtt sér til sköpunar, afslöppunar, lærdóms, eldamennsku og ræktað allt það sem sál og hugur grípur.
Starfsfólk ungmennahússins og hjarta ungmennahússins; unga fólkið sjálft, sjá Jöklu sem viðbót við félagslíf framhaldsskólanna og vettvang þar sem einstaklingar á aldrinum 16 til 18 ára geta skapað og notið í vímuefnalausu umhverfi. Jökla ungmennahús er staður þar sem hægt er að funda, vinna hljóð, myndbönd, skólablöð eða bara næra sálartetrið í góðum félagsskap.
Jökla er hús ungmennanna sem það sækja, ungmennin skapa sálina og eru grunnurinn að því sem Jökla getur orðið.