Tvíburar á öllum aldri eru boðnir sérstaklega velkomnir þegar nýjasta jólavættin verður afhjúpuð í Safnahúsinu (áður Þjóðmenningarhúsinu) á Hverfisgötu í rökkrinu á fimmtudagsmorguninn 4. desember frá klukkan 8.25 - 9.00. Óstaðfestar fregnir herma að jólavættin muni mögulega trufla dagskrá og færa öllum tvíburum snemmbúna jólagjöf.
Fjögur ár eru síðan fyrstu jólavættirnar fóru að birtast á húsveggjum í miðborginni og eru þær óðum að festa sig í sessi sem ein af jólahefðum Reykvíkinga. Með nýjustu viðbótinni verða jólavættirnar orðnar þrettán talsins. Fyrir eru Grýla, Leppalúði, Jólakötturinn, Rauðhöfði og nokkrir jólasveinar.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun kynna nýju vættina og Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri mun segja frá helstu viðburðum sem borgin stendur fyrir í Reykjavík í desember. Að því loknu verður haldið út fyrir og fylgst með þegar nýju vættinni verður varpað upp á vegg Safnahússins.
Gunnar Karlsson myndlistarmaður á heiðurinn af útliti jólavættanna en þær byggja á hugmynd Hafsteins Júlíussonar um að tengja íslenska sagnahefð við Jólaborgina Reykjavík. Jólavættirnar gegna lykilhlutverki í að kynna sérstöðu Reykjavíkur sem jólaborgar fyrir innlendum og erlendum gestum. Stöðugt fleiri erlendir ferðamenn sækjast í að upplifa desember í Reykjavík og hefur bandaríski fjölmiðillinn CNN tvisvar útnefnt Reykjavík sem eina af þremur eftirsóknaverðustu jólaborgum heims.
Meginmarkmiðið með jólavættunum er að skapa áhrifaríka og skemmtilega jólaupplifun í borginni á einfaldan hátt í góðu samstarfi við fjölda samstarfsaðila víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.
Boðið verður upp á heitt kakó og bakkelsi.