Tveir nýir leikskólastjórar

Skóli og frístund

""

Gengið var frá ráðningum tveggja leikskólastjóra á fundi skóla- og frístundaráðs í dag. Helena Jónsdóttir var ráðin leikskólastjóri í Grandaborg og Ólafur Brynjar Bjarkason leikskólastjóri í Hagaborg.

Helena Jónsdóttir útskrifaðist frá Fóstruskóla Íslands 1985 og frá Háskólanum á Akureyri í leikskólakennarafræðum árið 2000. Þá hefur hún lokið meistaranámi í stjórnunarfræðum menntastofnana frá HÍ. Hún hefur starfað sem deildarstjóri í leikskóla og sem leikskólastjóri um nítján ára skeið. Tuttugu sóttu um stöðuna.

Ólafur Brynjar Bjarkarson útskrifaðist sem leikskólakennari frá Háskólanum á Akureyri árið 2006. Hann lýkur í vor meistaranámi í stjórnun menntastofnana við HÍ. Hann hefur starfað við verkefnastjórn í frístund, sem yfirmaður frístundaheimils og sem aðstoðarleikskólastjóri í Ártúnsskóla síðastliðin 2 ár. Fimmtán sóttu um að verða leikskólastjóri í Hagaborg.

Helena og Ólafur Brynjar eru boðin velkomin í hóp skólastjórnenda í Reykjavík og óskað velfarnaðar í starfi. Þá er fráfarandi leikskólastjórum þökkuð unnin störf í þágu leikskólastarfs í Reykjavík.