Tónleikaröðin Drullumall fer af stað

Skóli og frístund

""

Drullumallið er komið á fullt skrið í félagsmiðstöðvum Kamps. Fyrsta Drullumall ársins fer fram miðvikudaginn 29. janúar í Risinu, Austurbæjarskóla. Húsið opnar kl. 19:00 og hefjast tónleikar upp úr kl. 19:30.

Dagskrá Drullumallsins er glæsileg að þessu sinni sem oft áður: Unglingabandið UN-POP AVOCADO, Kvennarapp-hópurinn REYKJAVÍKURDÆTUR og hiphop-goðsögnin CELL7. Til gamans má geta að í fyrsta sinn er dagskráin nær einungis skipuð tónlistarkonum en það er í fyrsta sinn sem það gerist og Drullumallsnefndinni til mikillar ánægju. Félagsmiðstöðvar eru endilega hvattar til að kíkja með unglingahópa og njóta frábærra tónleika.