Tíu metra hátt grenitré mun prýða Austurvöll

Umhverfi Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hjó tíu metra hátt sitgagrenitré við Rauðavatn rétt eftir klukkan tvö í dag. Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs á Íslandi var viðstödd skógarhöggið. Tréð var fellt til að prýða Austurvöll en Oslóartréð brotnaði í storminum sem gekk yfir landið í gær og nótt.





Nýja tréð er af tegundinni sitgagreni en það mun vera á milli 50 – 60 ára gamalt. Það stóð í grenilundi norðan við Rauðavatn í landi þar sem áður var sumarhúsabyggð en er nú útmörk Reykjavíkur. Borgin plantar 18 – 25 þúsund trjám ári að mestum hluta í útmörkina fyrir ofan Rauðavatn og á Hólmsheiði þannig að þar vex nú upp myndarlegur skógur.

Norski sendiherrann lýsti yfir ánægju sinni með tréð sem er hið glæsilegasta.

Greinarnar af hinu brotna Oslóartré verða hins vegar notaðar í jólaskreytingar í Tjarnarsal Ráðhússins. Þá er einnig verið að skoða ýmsa möguleika á því að nýta tréð sem best, jafnvel með útskurðar- og smíðanámskeiðum fyrir börn.

Starfsmenn borgarinnar fara nú í að taka niður vinargjöf Norðmanna sem brotnaði í látunum í nótt og stilla nýja trénu upp á Austurvelli svo allt verði klárt fyrir hátíðlega fjölskylduskemmtun sem haldin verður sunnudaginn 7. desember kl. 15:30 – 17 en þá verða ljósin kveikt á nýja trénu.