Reykjavíkurborg hvetur fólk og fyrirtæki til að taka til í sínu nánasta umhverfi nú um helgina. Markmiðið er að gera borgina skínandi fína fyrir sumarið. Hægt er fá poka undir ruslið á næstu Olísstöð.
Í gær fóru yfir 200 starfsmenn Reykjavíkurborgar og hreinsuðu opin svæði víða í borginni. Söfnuðu þeir á þriðja hundrað svörtum plastpokum af rusli. Reykjavíkurborg hvetur íbúa og fyrirtæki til að gera gagngera hreinsun í sínu nágrenni um helgina. Starfsfólk hverfastöðva Reykjavíkurborgar mun sækja pokana strax eftir helgi þar sem þeim hefur verið komið fyrir á áberandi stöðum í götum.
Allir sem vettlingi geta valdið geta tekið þátt í tiltektinni, fjölskyldur, vinnuhópar, húsfélög og íbúasamtök. Tiltektarhelgin felst í því að hreinsa burt rusl sem finna má í runnum, í garðinum heima, á leikvöllum eða opnum svæðum og gangstéttum. Ekki verður tekið á móti garðaúrgangi en íbúar eru hvattir til þess að nýta hann til moltugerðar í eigin görðum eða koma honum til jarðgerðar á endurvinnslustöðvum SORPU.
Tiltektarhelgin er mikilvægur liður í því að fegra borgina, verkefnið er gott fyrir borgarbúa og skapar betra viðmót gagnvart gestum borgarinnar. Það er góður vitnisburður þegar sagt er að Reykjavíkurborg sé hrein borg.
Kjörið er að senda ljósmyndir á Facebook síðu Reykjavíkurborgar, jafnvel af völdum stöðum fyrir hreinsun og eftir.
Göngum vel um borgina okkar alla daga og gerum hana skínandi fína.
Hagnýtar upplýsingar
Hagnýtar upplýsingar. Verkefnið felst í því að hreinsa nærumhverfið sitt eða valda staði af eigin vali og setja í svarta eða gráa ruslapoka sem skilja má eftir á hentugum stöðum í hverfisgötum. Garðaúrgangur fer ekki í þessa poka og best er að skila endurvinnanlegum úrgangi á endurvinnslustöðvar SORPU. Sjá auglýsingu: Tiltektarhelgi. Þeir sem vilja upplýsa eitthvað sérstakt varðandi pokana geta hringt í síma 411 8440 Í hverfastöðina í Jafnaseli eða í síma 411 8420 í hverfsstöðina við Njarðargötu mánudaginn 12. maí.