Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar verða afhent í 7. sinn við hátíðlega athöfn í Höfða föstudaginn 16. maí en sá dagur er mannréttindadagur borgarinnar.
Mannréttindaráð Reykjavíkur óskar eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna 2014 og er hægt að tilnefna einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Tilnefningar sendist rafrænt á netfangið mannrettindi@reykjavik.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 6. maí.
Áður hafa hlotið verðlaunin:
- 2008: Alþjóðahús,
- 2009: Rauði Kross Íslands,
- 2010: Blátt Áfram,
- 2011: Hinsegin dagar,
- 2012: Listahátiðin List á landamæra,
- 2013: Samtök um kvennaathvarf.