Tilkynning vegna bruna í Skeifunni

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur beinir því til borgarbúa í nágrenni við Skeifuna að loka vel gluggum vegna reykmengunar sem berst frá eldinum í Skeifunni í kvöld 6. júlí 2014. Nokkrar byggingar hafa brunnið en Slökkvilið Höfuborgarsvæðisins telur sig hafa náð tökum á eldinum. 

Stórt svæði hefur verð rýmt um­hverf­is elds­voðann sem kom upp í fata­hreins­un­inni Fönn í Skeif­unni. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og vill Heilbrigðiseftirlitið því ráðleggja íbúum í nágrenni að loka gluggum og kynda vel þær íbúir þar sem reykur hefur borist inn. Heilbrigðisfulltrúar eru á staðnum og meta aðstæður ásamt Slökkviliðinu.