Þjónustumiðstöð Vesturbæjar - Vesturgarður fékk afhent í morgun viðurkenningu fyrir skref þrjú í grænu skrefunum. Þar sem skrefin eru fjögur vantar aðeins eitt skref uppá hjá starfsmönnum Vesturgarðs til að klára öll skrefin. Hér má sjá hluta af starfsmönnum glaða með viðurkenninguna í morgun.