Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða flytur
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða mun opna á nýjum stað að Laugavegi 77, 2. og 3. hæð, mánudaginn 14. apríl. Vegna flutninganna mun Þjónustumiðstöðin að Skúlagötu 21 vera lokuð föstudaginn 11. apríl.
Athugið að vegna flutninganna mun Þjónustumiðstöðin að Skúlagötu 21 vera lokuð föstudaginn 11. apríl. Vonast er til að flutningarnir muni valda sem minnstri truflun á þjónustu stöðvarinnar.
Þjónustumiðstöðin hefur verið til húsa að Skúlagötu 21 um árabil. Starfsemin hefur stöðugt vaxið og stækkun húsnæðis var því orðin óumflýjanleg.