Þjónusta mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráðs við innflytjendur
Mannréttindi Mannlíf
Kynjuð fjárhagsáætlunargerð snýst um að sameina tvenns konar þekkingu – þekkingu á misrétti kynjanna og þekkingu á fjármálum og áætlunum hins opinbera. Það er mikilvægt að þeir fjármunir sem veittir eru til þjónustu við innflytjendur nýtist báðum kynjum og fjölmennustu þjóðarhópum Íslendinga.
Kynjuð fjárhagsáætlunargerð snýst um að sameina tvenns konar þekkingu – þekkingu á misrétti kynjanna og þekkingu á fjármálum og áætlunum hins opinbera. Reykjavíkurborg hefur jafnræði borgaranna og mannréttindi að leiðarljósi í öllu starfi og hefur einsett sér að vera í fararbroddi í mannréttindamálum með sérstakri áherslu á jafna stöðu kvenna og karla. Kynjuð fjárhagsáætlunargerð fellur vel að þessum markmiðum. Aðferðin byggir á þeirri forsendu að ákvarðanir í fjármálum hins opinbera séu ekki hlutlausar gagnvart kynjunum og ásetningi hins opinbera að vinna að leiðréttingu misræmis og misréttis.
Sem hluti af innleiðingarferli kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar hjá Reykjavíkurborg hefur verið gerð úttekt á þjónustu mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráðs við innflytjendur. Það er mikilvægt að þeir fjármunir sem veittir eru til þjónustu við innflytjendur nýtist báðum kynjum og fjölmennustu þjóðarhópum Íslendinga.
Við vinnuna kom meðal annars í ljós að konur eru í meirihluta þeirra sem sækja ráðgjöf skrifstofunnar eða 61% á móti 39% karla en samkvæmt tölfræðilegum upplýsingum um fjölda erlendra ríkisborgara og innflytjenda á Íslandi er hlutfall kvenna og karla allt að því jafnt. Þegar fyrirspurnir eru skoðaðar eftir málefnum; atvinnumál, fjárhagsaðstoð, fjölskyldumál, heilsa, húsnæðismál, réttindi, skattur og skóli og frístundir þá kemur í ljós að einungis í málaflokkunum fjárhagsaðstoð og heilsa eru karlar með fleiri fyrirspurnir en konur.
Í tengslum við vinnu að skýrslunni voru lagðar til aðgerðir sem miða að því að auka aðgengi karla að þjónustunni. Þær snúa meðal annars að samvinnu við stéttarfélög og kynningu á ráðgjafaþjónustunni, heimsóknum á vinnustaði þar sem hátt hlutfall karla af erlendum uppruna starfar o.fl.