Sýning á ljósmyndum og ljóðum 10-12 ára barna

Skóli og frístund Mannlíf

""

Skemmtileg sýning á ljóða- og ljósmyndaverkefnum nemenda í 7 grunnskólum borgarinnar var opnuð í Borgarbókasafninu í dag. 

Á sýningunni eru ljósmyndir sem 10-12 ára börn tóku út frá ýmsum þemum og ljóð sem þau ortu við myndirnar.

Verkefnið var unnið undir leiðsögn Marteins Sigurgeirsson sem kennt hefur ljósmyndun í grunnskólum Reykjavíkur í um 40 ár.



Við myndatökuna veltu börnin m.a. fyrir sér formi, lit, birtu, dýpt, skerpu, speglun, hreyfingu og ramma. Ljósmyndagreining var einnig hluti af vinnunni þar sem ýmsum spurningum var 

velt upp, s.s.  hvað er á myndinni, hvaða litir og form eru í myndinni og hvaða tilfinningar vakna þegar þú skoðar myndina?

Nemendur notuðu ljósmyndirnar sem kveikju að ljóði og huguðu að því hverju orðin bættu við upplifun af myndinni. Marteinn hefur lengi unnið með börnum að sambærilegum verkefnum og er þetta í fjórða sinn sem hann setur upp ljóða- og ljósmyndasýningu með verkum grunnskólabarna. 

Ljósmyndasmiðja á sunnudaginn

Sunnudaginn 6. apríl kl. 15.00 mun Marteinn vera með ljósmyndasmiðju  í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu þar sem hann mun fjalla um ljósmyndun

myndbyggingu, dýpt, áferð og lit ljósmynda. Í framhaldi af því fara þátttakendur út að taka myndir. Að því loknu verður rýnt í nokkrar af þeimmyndum sem teknar voru. Smiðjan er ætluð stálpuðum

krökkum, ungu fólki og fullorðnum og eru þátttakendur beðnir að taka með sér myndavélar.