Í tilefni af degi íslenskrar náttúru 16. september efndi Reykjavíkurborg til ljósmyndakeppni meðal grunnskólabarna. Viðfangsefnið var „Náttúran í borginni – hið kunnuglega og óvænta“. Vinningsmyndirnar eru nú til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt úrvali annarra mynda sem bárust í keppnina.
Hinir ungu ljósmyndarar fengu það verkefni að finna hvernig hið manngerða og hin villta náttúra mætast í borgarlandslaginu.
Þátttaka í keppninni var afar góð en nær 150 myndir bárust í keppnina. Ljósmyndirnar eru hvaðanæva úr borginni eins og ljósmyndararnir sem eru úr mörgum grunnskólum og á ýmsum aldri. Ljósmyndirnar sem bárust eru einstaklega fjölbreytilegar og skemmtilegar og sýna vel hugmyndaflug, frumlega nálgun og færni ljósmyndaranna.
Verðlaun voru veitt fyrir áhugaverðustu myndirnar og þær sem fönguðu þema keppninnar á hvað bestan hátt. Verðlaunaafhending fór fram þann 3. október síðastliðinn. Fyrstu verðlaun hlaut Freyja Stígsdóttir úr 7. AS í Austurbæjarskóla en einnig voru veitt verðlaun fyrir annað, þriðja, fjórða og fimmta sæti.
Allar verðlaunamyndirnar eru til sýnis hér í Ráðhúsinu og stendur sýningin til 9. nóvember. Jafnframt eru 20 aðrar myndir úr keppninni til sýnis sem einnig hlutu góðar undirtektir hjá dómnefnd en í henni sátu:
• Björn Ingvarsson – áhugaljósmyndari og deildarstjóri þjónustumiðstöðvar í Stórhöfða
• Edda Ýr Garðarsdóttir – myndlistarkennari Dalskóla
• Sigrún Björnsdóttir – upplýsingafulltrúi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur
• Snorri Sigurðsson – umsjónarmaður Reykjavík-iðandi af lífi.
Sjá má allar ljósmyndirnar sem sendar voru í keppnina á Facebook síðu Reykjavíkurborgar (www.facebook.com/Reykjavik).