Svifryk líklega yfir mörkum

Heilbrigðiseftirlit

""

Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, miðvikudaginn, 19. febrúar. 

Töluverður vindur er í Reykjavík ídag, götur þurrar og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands eru litlar líkur á úrkomu fyrr en í nótt. Klukkan 11:30 í morgun var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 488 míkrógrömm á rúmmetra en sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Næstu daga er búist við að einhverri vætu en miklum vindi sem getur þyrlað upp ryki af þurri jörðu og valdið rykmengun. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu að forðast miklar umferðargötur.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á www.reykjavik.is/loftgaedi en þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi. Önnur loftgæðafarstöðva Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er að þessu sinni staðsett við leikskólann Hólaborg við Suðurhóla.