Sunnusjóður styrkir Klettaskóla

Skóli og frístund

""

Fulltrúar Sunnusjóðs hafa afhent Klettaskóla ný tæki til að kenna og þjálfa fjölfatlaða nemendur. Tækin voru afhent við hátíðlega athöfn föstudaginn 31. október.  

Tækin eru gjöf frá sjóði sem kenndur er við Ingibjörgu Sunnu Vilhjálmsdóttur, sem var á sínum tíma nemandi í Safamýrarskóla. Hann var stofnaður af hjónunum Ingibjörgu Guðmundsdóttur og Sverri Sigurðssyni og hefur starfað um 30 ára skeið. Markmið sjóðsins eru að bæta kennslu- og þjálfunaraðstæður fyrir fjölfötluð börn á grunnskólaaldri og stuðla að áframhaldandi líkamlegum og andlegum þroska þeirra. Tækin sem gefin voru eru kennslu- og skynörvunartæknibúnaður sem örvar nemendur og kennir þeim einfaldar athafnir. 

Tekið var á móti Sunnu, fjölskyldu hennar og sjóðsstjórn þegar þau komu færandi hendi í Klettaskóla, gengið um skólann og fylgst með kennslu fjölfatlaðra nemenda. Ýmis kennslutæki voru skoðuð og við athöfn að því loknu var aðstandendum Sunnusjóðs þakkaður hlýhugur og stuðningur til margra ára. Helsti bakhjarl Sunnusjóðsins er matvælaiðjan Katla, en hluti söluandvirðis bökunardropa hjá fyrirtækinu rennur til sjóðsins.

Klettaskóli er sérskóli á grunnstigi sem þjónar öllu landinu. Hann sækja um 100 nemendur á hverju skólaári. Stór hlut nemenda hans þurfa mikla aðstoð, bæði við nám og daglegar athafnir.