Útgefendur myndríkra bóka sem tengjast sögu og menningu Reykjavíkurborgar geta nú sótt um styrk til niðurgreiðslu á kostnaði vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Styrkirnir eru veittir vegna útgáfu bóka sem áætlað er að komi út á árinu 2014 eða í ársbyrjun 2015.
Styrkirnir eru liður í nýsamþykktri menningarstefnu Reykjavíkurborgar sem miðar m.a. að því að hlúa að varðveislu menningararfleifðar og hvetja til miðlunar hennar.
Þriggja manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögusafns Reykjavíkur og skrifstofustjóra menningarmála Reykjavíkur metur umsóknirnar. Frestur til að skila umsóknum er 23. júní 2014.
Í umsókn skulu koma fram nauðsynlegar upplýsingar um umsækjanda ásamt góðri lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Auk þess skal þar koma fram áætlaður kostnaður vegna afgreiðslu og myndbirtinga á ljósmyndum frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Utanáskrift umsóknar: ,,Myndrík bók um sögu Reykjavíkur“ b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 3. hæð, 101 Reykjavík.