Styrkir Reykjavíkurborgar - tekið á móti umsóknum til 1. október nk.

Velferð Skóli og frístund

""

Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2015. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. 

Styrkirnir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:



• félags- og velferðarmála,

• skóla- og frístundamála,

• íþrótta- og æskulýðsmála,

• mannréttindamála,

• menningarmála.



Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli. Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum málaflokkum.



Umsóknarfrestur er til 1. október nk. og eru einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir alla jafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi:



• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð,

• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf,

• hvort unnt sé að meta framvindu verksins,

• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur,

• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi,

• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn.



Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í ársbyrjun 2015.



Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má

senda á netfangið: styrkir@reykjavik.is

More information: styrkir@reykjavik.is

Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is