Borgarbókasafn Reykjavíkur og Rauði krossinn í Reykjavík hafa um árabil boðið upp á heimanámsaðstoð fyrir nemendur í grunnskóla og nú hefur skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar bæst í samstarfshópinn.
Heimanámsaðstoðin felst í því að nemendum í 4. – 10. bekk býðst að koma með heimanámið sitt á bókasafnið og fá aðstoð frá sjálfboðaliðum Rauða krossins í Reykjavík.
Meðfram heimanámsaðstoðinni fá nemendur tækifæri til að kynnast bókasafninu, starfi þess og safnkosti.
Megináhersla er lögð á að bjóða upp á gott umhverfi sem styður við áframhaldandi nám, styrkja sjálfsmynd þeirra og gefa þeim möguleika á að hitta vini sína og eignast nýja.
Allir nemendur eru velkomnir og er hægt að nálgast upplýsingar á sex tungumálum á heimasíðu verkefnisins www.heilahristingur.is
Heimanámsaðstoðin býðst í þessum söfnum:
Kringlusafn: Mánudagar kl. 14:45-16:15
Gerðubergssafn: Miðvikudagar kl: 14:30-16:00
Heimanámsaðstoðin mun hefjast mánudaginn 22. janúar og er það von okkar að kennarar og foreldrar hvetji nemendur til að nýta sér þessa þjónustu.
Upplýsingarfundir verða fyrir kennara þriðjudaginn 28.janúar kl. 14.30 í Gerðubergssafni og miðvikudaginn 29.janúar kl. 14.30 í Kringlusafni.
Hægt er að fylgjast með starfinu á facebooksíðunni „Heilahristingur“