Stuð á kassabílarallý Frostaskjóls

Skóli og frístund Mannlíf

""

Spennan var rafmögnuð þegar börn af þremur frístundaheimilum Frostaskjóls kepptu í kassabílarallý á Ingólfstorgi í dag. 

Börnin gengu fylktu liði niður á Ingólfstorg og skreyttu sig með heimatilbúnum búningum í litum sinna frístundaheimila, gul, græn og blá. Þegar allir voru búnir að fá djús og kleinu niðri á Ingólfstorgi upphófst keppnin. Skipt var upp í stúlku- og drengjalið og kepptu frístundaheimilin sín á milli. Hvatningarópin ómuðu um torgið þegar kassabílarnir þeyttust þar um og er óhætt að segja að hlaupið hafi verið af kappi með bílana. Allir eru sigurvegarar í góðum leik og skiptust sigurlið frístundaheimilanna nokkuð jafnt milli kynja og bekkjarstiga.